top of page

Aðalfundur þriðjudaginn 29. apríl kl. 20

27. apr. 2025

Kæru félagar!

Aðalfundur Samtaka um dýravelferð á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 20. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur svo félagar um allt land geti sótt fundinn og verður hlekkur sendur til félaga tímanlega fyrir fund.



Á dagskrá eru lögbundin aðalfundarstörf:



• Kosning fundarstjóra og fundarritara.


• Skýrsla stjórnar.


• Reikningar lagðir fram til samþykktar.


• Breytingar á samþykktum.


• Ákvörðun félagsgjalds.


• Önnur mál.



Atkvæðisrétt hafa skráðir félagar sem greitt hafa árlegt félagsgjald. Árgjaldið mun birtast sem krafa í netbanka á næstu dögum. 



Hlý kveðja, 


stjórn SDÍ


Birta, Björn, Rósa og Harpa

bottom of page