top of page

Ísland í eigin skinni

Mar 17, 2026
Ný herferð gegn loðdýraeldi
Við erum stolt af því að kynna nýja herferð: Ísland í eigin skinni #bönnumloðdýraeldi
Herferðin er sett af stað til hvatningar um endanlegt bann við loðdýraeldi á Íslandi og varpa ljósi á þann veruleika sem dýr í iðnaðinum búa við. Vinir okkar hjá Humane World for Animals styðja herferðina og leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á málinu á alþjóðavettvangi.
Loðdýraeldi hefur verið lagt af í fjölda landa á grundvelli dýravelferðar, umhverfisáhrifa og smithættu. Aðeins eitt minkabú eftir á Íslandi.
Þú getur hjálpað okkur að binda endi á loðdýraeldi
Skrifaðu undir undirskriftasöfnunina
Deildu efni á samfélagsmiðla til að auka þrýsting og umræðu
Ekki kaupa vörur með loðfeld
Skora á verslanir að hætta að framleiða og selja fatnað með loðfeld
bottom of page