top of page

Auka-aðalfundur SDÍ 2026

Jun 8, 2026

Samantekt auka-aðalfundar SDÍ 2026

Auka-aðalfundur SDÍ var haldinn þann 8. júní 2026. Hér má sjá skyggnusýningu sem notuð var við kynninguna.




Eitt mál var á dagskrá:


  • Kosning um eitt sæti í stjórn


Tilefnið var það að Harpa Kristbergsdóttir sem setið hafði í stjórn SDÍ sl. 2 ár þurfi að segja sig úr stjórn vegna anna þó hún verði okkur áfram innan handar í vinnuhópi um málefni svína. Kann stjórn henni bestu þakkir fyrir vel unnin störf. 


Það var því aðkallandi að kjósa nýjan stjórnarmeðlim í hennar stað og sbr. ákvæði 7. gr. í samþykktum félagsins nýtti stjórn heimild sína til að boða til aukaaðalfundar þar sem kjósa skyldi nýjan stjórnarmeðlim.


Eitt framboð barst og það frá Andrési Inga Jónssyni, fyrrum alþingismanni.



Andrés hefur töluverða reynslu af vettvangi stjórnmála, þar sem hann sat á Alþingi í átta ár og beitti sér þar ítrekað fyrir málefnum mannréttinda, umhverfisverndar og dýravelferðar. Baráttan fyrir bættum aðbúnaði dýra og aukinni virðingu fyrir réttindum þeirra skiptir hann miklu máli og langar hann að leggja sitt af mörkum til þess að Samtök um dýravelferð haldi áfram að vaxa og styrkjast í baráttunni fyrir því að réttindi dýra séu virt.


Samtökin bjóða Andrés velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.

bottom of page