top of page

Framboð í laust sæti í stjórn

May 19, 2026

Boðað hefur verið til auka-aðalfundar 8. júní n.k. til að kjósa um sæti sem losnaði stjórn. Framboðsfrestur var til miðnættis í gær og kom eitt framboð inn: Andrés Ingi Jónsson Ég vil gefa kost á mér í stjórn Samtaka um dýravelferð. Ég hef töluverða reynslu af vettvangi stjórnmála, þar sem ég sat á Alþingi í átta ár og beitti mér þar ítrekað fyrir málefnum mannréttinda, umhverfisverndar og dýravelferðar. Baráttan fyrir bættum aðbúnaði dýra og aukinni virðingu fyrir réttindum þeirra skiptir mig miklu máli og mig langar að leggja mitt af mörkum til þess að Samtök um dýravelferð haldi áfram að vaxa og styrkjast í baráttunni fyrir því að réttindi dýra séu virt.


bottom of page