top of page

Skemmdaverk og dýrum stefnt í hættu / Afstaða

May 12, 2026

Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) starfa faglega í þeim tilgangi að upplýsa og fræða almenning auk þess að krefjast umbóta þar sem dýravelferð er ábótavant.


Skemmdir á húsnæði og innanstokksmunum þar sem dýrum er stefnt í hættu er verknaður sem við teljum að engin fagleg dýravelferðarsamtök myndu styðja.


Samtök um dýravelferð eru alfarið á móti slíkum verknaði og bendum fólki sem er misboðið vegna aðbúnaðar svína þess í stað að styrkja fagleg dýravelferðarsamtök með fjárframlagi sem nýtist við friðsamlega og málefnalega baráttu fyrir bættri dýravelferð. Einnig er hægt að leggja dýravelferð lið með því að skrifa undir undirskriftalista sem ætlað er að þrýsta á stjórnvöld, hvetja kjörna fulltrúa til að beita sér fyrir umbótum og deila upplýsingum á samfélagsmiðlum til að auka vitund og skapa umræðu í samfélaginu. Að lokum er hægt að minnka eftirspurn eftir dýraafurðum sem fólki finnst framleiddar við óviðunandi aðstæður með því að velja annað í innkaupakörfuna. Við getum öll lagt eitthvað friðsamlega að mörkum. Margt smátt gerir eitt stórt.

bottom of page