

Hjálpaðu okkur að binda endi á loðdýraeldi á Íslandi
Um minka
Minkar eru gæddir miklum klifur- og sundhæfileikum. Það er mikil leikgleði í þeim. Minkar eru snjöll og forvitin dýr. Líkt og kettir þá mala minkar þegar þeim líður vel. Minkum er eðlislægt að synda í vatni. Þeir eru meira að segja með sundfit á milli tánna! Rannsókn sýnir að þegar þeir hafa ekki aðgang að vatni til að busla í veldur álíka streitu og þegar þeim er að neitað um fæðu.
Loðdýraeldi
Tilvera minka í loðdýraeldi er ein sú dapurlegasta sem hugsast getur. Frá fæðingu til dauðadags dvelja þeir í litlum vírnetsbúrum þar sem þeir geta hvorki hlaupið, grafið né synt. Eina “afþreyingin” er að ráfa fram og til baka í tilgangslausa hringi um búrið.
Minkar eru greind rándýr sem í náttúrunni ferðast um stór svæði, veiða, synda og kanna umhverfi sitt. Þegar dýr fá ekki tækifæri til að sýna sitt eðlilega atferli leiðir það til alvarlegrar streitu og vanlíðan. Í loðdýraeldi birtist það meðal annars í sjálfskaðandi hegðun líkt og að naga eigin líkama. Þetta kemur fram í vísindalegu áliti EFSA. Yfir 330.000 dýralæknar hafa kallað eftir því að loðdýraeldi verði lagt af. Í dag er aðeins eitt minkabú eftir á Íslandi. Samkvæmt eftirliti hefur þar ítrekað verið gerð athugasemdir við reksturinn vegna brota á reglum um velferð dýra.
Iðnaðurinn hefur verið rekinn með tapi um árabil, en hefur fengið ríkisstyrki, t.d. var iðnaðurinn styrktur um 160 milljónir af almannafé á árunum 2020-2021.
Minkar eru haldnir í búrum úr vírneti sem eru 30x70 cm að stærð. Aflífunin fer fram í loftþéttum kassa sem þeim er troðið í og gasi er hleypt á. Það tekur allt að 60 sekúndur uns hvolparnir missa meðvitund, og drepast eftir 5 mínútur þegar kolmonoxíð mettunin hefur eytt súrefninu úr hjarta og heila. Þessar fyrstu 60 sekúndur eru afar kvalafullar fyrir hvolpana en gasið veldur sviða og hægri köfnun.
Loðdýraeldi er á undanhaldi en 24 lönd hafa bannað loðdýreldi vegna þess að starfsemin samrýmist ekki þeim grunnkröfum sem gerðar eru til velferðar dýra í dag. Um allan heim hefur iðnaðurinn dregist hratt saman og almenningur lýst skýrri andstöðu við loðdýraeldi og að dýr séu haldin í búrum alla ævi í búrum í þeim eina tilgangi að ala af þeim skinn fyrir tískuiðnaðinn.
Afstaða SDÍ
Við viljum að loðdýrahald verði bannað á Íslandi.
Hvað höfum við gert?
Í mars 2023 stóð SDÍ fyrir "minkamars", herferð/vitundarvakningu um minka og aðbúnað þeirra í loðdýraiðnaði á Íslandi. Herferðin samanstóð af fræðandi auglýsingum á samfélagsmiðlum, greinaskrifum, útvarpsviðtölum og undirskriftarsöfnun til stuðnings banni við loðdýraeldi.
Hvað getur þú gert?
-
Skrifað undir undirskriftarlistann!
-
Ekki kaupa fatnað með loðfeldi
-
Skorað á þingmenn og ráðherra að láta til sín taka í málaflokknum
-
Skora á verslanir að hætta að framleiða og selja fatnað með loðfeld
-
Deilt fræðsluefni til að vekja athygli fólks á málefninu
-
Þú getur skráð þig í félagið hér:
Fréttir / greinar

