
Aðalfundur SDÍ 2025

5. maí 2025
Samantekt aðalfundar SDÍ 2025
Aðalfundur SDÍ 2025 var haldinn 29. apríl sem fjarfundur og var þetta fjölmennasti aðalfundurinn hingað til þar sem þátttakendafjöldi náði 12 manns þegar mest var. Hér má sjá skyggnusýninguna sem notuð var til kynningar á starfi félagsins síðasta árið:
Helst á dagskránni voru:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Breytingar á samþykktum
Ákvörðun félagsgjalds
Önnur mál
Einnig var samþykkt að taka inn nýjan stjórnarmeðlim vegna brottfalls úr stjórn sem mun fylla skarðið fram að næstu stjórnarkosningu. Sá heitir Atli Sævar Guðmundsson og býr í Reykjavík.

Atli er tónlistarmaður og tölvunarfræðingur og hefur lengi verið málsvari dýra um víðan völl. Hann hefur sérstakan áhuga á að verja réttindi málleysingja og draga úr þjáningu þeirra þar sem mest liggur við, í dýraafurðaframleiðslu matvæla.
Samtökin um dýravelferð á Íslandi bjóða Atla velkominn til starfa og hlakkar til að nýta þennan liðsauka til að bæta velferð dýra enn meira og standa enn betri vörð um að réttindi þeirra séu virt.