top of page

Yfirlýsing vegna harmleiks í Mosfellsdal

29. júl. 2026

Afstaða

Sá harmleikur sem nú á sér stað í Mosfellsdal þar sem minkum var sleppt út í náttúruna, er að mati SDÍ sorglegur atburður. SDÍ styður ekki hermdarverk af þessu tagi. Afstaða samtakanna er skýr hvað það varðar. Að sama skapi er afstaða SDÍ skýr varðandi búrahald loðdýra. Það er ekki iðja sem ætti að líðast í nútímasamfélagi og atburðurinn í dag er þörf áminning til stjórnvalda um að taka af skarið og leggja niður loðdýrahald á Íslandi.

bottom of page